Færsluflokkur: Bloggar

Reiðhöll dómarana ?

Eina samfærandi skíringin sem ég finn á svona dómi er að þeir fái sjálfir "fulla þjónustu" þarna í kompaníi með Kópavogs fitu fjallinu. Tónar það ekki fínt við þjóðfélagið okkar, aumur skríllinn og hinir í "hljómsveitinni" sem allt mega ?
mbl.is Vikan lýsir furðu á dómi Hæstaréttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölmargir Íslendingar styðja glæpalýðinn af öllum mætti

Þrátt fyrir að þessir menn eigi lystisnekkjur og bústaði fyrir tugir miljarða skuldlaust á sínu nafni með "stórveldið" sitt þannig statt að það á ekki fyrir nema einum þriðja af skuldum styðja Íslendinga eins og þeir geta við þessa glæpamenn. Þrátt fyrir að þeir séu búnir að ræna ævisparnaði fólks í mörgum löndum verslum við í Bónus og borgum Stöð2. Berjum í potta og heimtum Davíð út sem á ekki bót fyrir boruna á sér í samanburði við þessa níðinga. Stundum hvarflar það að manni að kannski eigum við þetta bara skilið heimskunnar vegna. 


mbl.is Mosaic jafnvel í greiðslustöðvun í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýgur Ingibjörg Sólrún upp í opið geðið á þjóðinni ?

"Ingibjörg Sólrún sagði Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið ekki hafa brugðist við tilmælum frá ríkisstjórninni með nógu miklum krafti."

Þetta passar alls ekki við allar þær upplýsingar sem fram hafa komið.  Legðu fram sannanir fyrir þessu eða  á þetta verður litið sem ómerkilega lygi til að bjarga eigin skinni.


Dabbi ljóti bjargaði mér ekki

Er hægt að sleikja botninn betur en með jafn aumkunarverðu væli ? Svo til að kóróna "forustuhæfileikana" á svo að gera tilraun til að skríða inn til baka í skjóli Jóhönnu.


mbl.is IMF varaði við í apríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ropað með afturendanum

Er ekki komið meira en nóg af þessum heimsku yfirlýsingum ? Ráðalausir vesalingar koma í síbylju með svona yfirlýsingar í von um að þetta blessist, ekki af því að þeir hafi eitthvað unnið til þess með aðgerðum heldur bara í von um að hlutirnir reddist. Svo eru þeir tilbúnir með lofræðu um sjálfan sig ef hlutirnir skána vegna utankominna breytinga. Ætlar Steingrímur kannski að ráða fleiri fjárglæframenn i skilanefnd bankana til að hygla sér. Það hefði heyrst í þessu tóma röri ef annar hefði ráðið slíkan snilling í skilanefndina. Hvað hefur svo þessi ríkistjórn unnið sér til frægðar ? Jú, hrakið frá okkur 2 bestu sérfræðinga í starfsemi Seðlabankans bara til að reka Davíð. Til þess hefur hún notað baugsmiðlana og byggt upp falska vantrú á Seðlabankanum. Auðvitað er komin vantrú hér innanlands vagna slíkra endalausra lyga. Hitler notaði slíkan áróður með verulega "góðum" árangri. Hafa einhverjir erlendir aðilar sem ekki eru aðkeyptar baugs eða komma málpípur gagnrýnt bankann ? Davíð vildi aflétta bankaleyndinni strax, en nei, nei það má ekki því þá kæmi í ljós hvaða stjórnmálamenn hafa fengið miljarða óeðlilega fyrirgreiðslu í gegnum einkahlutafélögin sín. Alveg nauðsynlegt að þagga niður í slíkum mönnum. Út með alla þessa siðlausu ræfla sem nú sitja.
mbl.is Vextir fara að lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjarklausir vesalingar ?

Það verður fróðlegt að fylgjast með því á morgunn hvort "nýi" Framsóknarflokkurinn styðji versta og sóðalegasta lagafrumvarp sem fram hefur komið í þinginu. Einnig stuðninginn við Steingrím þegar hann ræður vini sína, sem hafa fengið hundruð milljóna í afslátt, til að bjarga þjóðfélaginu. Sorinn er það eina sem virðist vera endalaus hjá þessu fólki sem nú situr.
mbl.is Peningastefnunefnd skal gefa út viðvörun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigmar Guðmundsson Baugsmiðill

Hér var ágætt tækifæri til að fá ýmsar nytsama upplýsingar frá Davíð. Í það verkefnivar valinn Sigmar Guðmundsson, sem gjörsamlega gerði sig að algeru fífli. Hvernig er hægt að hafa svona mann í ríkisfréttamiðli sem í síbylju fer með innantómar staðhæfingar, "Baugsfullyrðingar og aðrar lygar" og ber þetta fram sem einhvern sannleika. Það er greinilega þörf á hreinsun hjá RUV líka.


mbl.is Fjármagnsflutningar Kaupþings höfðu mikil áhrif á Bretana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjáraustur og botnlaust bruðl jóJóhönnu

 Það er verið að reka mann og annan af þessu minnihlutafólki sem náði að "hösla" til sín völdin. Þessi máttlausi sundurleiti hópur veit það fyrirfram að dagar þeirra eru ör fáir við völd. Svo eftir þeirra eigin kenningum er það auðvitað alveg sjálfsagt að nýir valdhafar skipti svo aftur út öllum í "lykil stöðum". Hvað halda þessir hálfvitar að þetta kosti þjóðina í starfslokasamningum ? Er ekki lámarks krafa að þessi fylgislausi forheimski hópur haldi sig á mottunni fram yfir kosningar ?


mbl.is Vill að Eiríkur hætti strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burt með stuðningslausa valdafíkla

Það er víst óumdeilt að fólkið í landinu vill burt með fólk sem hefur ekkert fylgi á bak við sig. Ég tala nú ekki um fólk sem er búið að pota sér í æðstu stöður með greiðasemi áðurnefndra. Er þetta ekki nýja ríkisstjórnin í hnotskurn ?
mbl.is Pólitískar hreinsanir og heift
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna komin í forheimska egóvímu

Það er fáránlegt þegar umboðslaus skessa ætlar sér að umbylta kerfinu eftir fylgislausum hugmyndum. Þetta hyski hefur alldrei fengið umboð þjóðarinnar og fær það aldrei. Þessi minnihlutastjórn situr í stólunum eftir að hafa otað sér áfram á óheiðalegan hátt með valdhroka. Væri ekki nær fyrir þessi gerpi að þau reyndu að leita eftir umboði frá öðrum en örfáum tómum dósa trommurum. Nú koma þessir kommar eins og rottur upp úr öllum holum með sínar fáránlegu hugmyndir sem aldrei hafa hlotið mikið fylgi. Við búum í einu besta þjóðfélagi heimsins og þó örfáir glæpamenn hafi náð að misnota hluta þess er ekki réttlætanleg að fara út í einhverjar byltingar. Væri ekki nær að fólk reyndi á ná til glæpamananna en ekki þeirra sem það ætlaðist til að pössuðu sig ? Kannski hefði fólki verið nær að hlusta þegar Davíð hamraði á því að þeir sem hefðu ekki tekjur í erlendri mynt ættu ekki að taka lán í erlendri mynt. Þeim skal svíða sem undir míga, ekki vorkenni ég þeim.

Auðvitað þarf að koma í veg fyrir að svona geti endurtekið sig, en fyrst og fremst að standa vörð um það góða þjóðfélag sem við höfum náð að skapa síðustu áratugina og láta ekki byltingar hálfvita koma okkur aftur um 50-100 ár í velferðarkerfinu. Hver getur trúað því eftir að hafa fylgst með þessu fólki öll þessi ár að Steingrímur og Jóhanna séu bjargvættir ? Á hvaða lyfjum eru sumir ?


mbl.is Jóhanna og Davíð ræddu saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband