7.11.2008 | 17:42
Óþolandi.. eða ?
Manni hlýna verulega um hjartaræturnar þegar elskan hún Þorgerður ætlar með okkur skrælingjunum saman í gegn um þessar þrengingar og kannski ætlar bara sjálfur Kaupþings kallinn hennar með okkur líka. Vonandi tekst þeim hjónunum að vera áfram í þeirri aðstöðu að geta sparað saman nokkur tugir milljóna, okkar barnabörn fá nú líka slíkar upphæðir í vöggugjöf (reyndar með mínus fyrir framan). Er gjöfin ekki komin frá þessum sem spöruðu sem allra mest? Leggja verður svo ríka áherslu á að ekki fari af stað neitt óþolandi umtal um slíka göfuglyndi.
Setur spurningamerki við spá Seðlabankans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.